Ég hefði ekkert á móti því að spóla eitt ár til baka og við værum að fara að byrja í 4-D núna. Það var of skemmtilegt. en annars trúi ég ekki að sumarið sé búið! hér eru myndir af þeim sem voru svo heppnir að hitta mig í bænum í sumar:










en hvað er fólk að fara gera að loknum MS? Það eina sem ég veit fyrir víst er að ég verð að vinna í álverinu í straumsvík fram að áramótum og fer svo í heimsreisu í 4 mánuðu eftir áramót!
Annars hef ég líka heyrt að gáfumennin Villi og Sigurgeir ætli í viðskiptafræði.
Kristján ætlar í Íslensku og getur lagfært þessa færslu ef honum leiðist.
Halli, Kári, Hrefna og Erla eru farin til danmerkur í lýðháskóla.
Nína ætla til bandaríkjana að leika sér.
Dana ætla að vinna á klakanum í eitt ár.
Stebbi segist ætla í eitthvað lestaferðalag.
Þóra ætlar að vinna fram að áramótum og svo heimsreisa.
Held að Harpa og Sindri ætli í Sálfræði, passar það?
og meira veit ég ekki
Hvað eru Linda, Atli, Maggi, Bryndís og Simmi að fara að gera?
Kv Sif